![]()
Helga Kvam og Þórhildur Örvarsdóttir. Ljósmynd: Daníel Starrason.
Tónlistarkonurnar Helga Kvam og Þórhildur Örvarsdóttir hafa í nokkur ár starfað saman sem dúett (píanó/söngur) og haldið saman marga þematengda tónleika þar sem efnistökin eru oftar en ekki ákveðin ljóðskáld/tónskáld bæði úr klassískum grunni og heimi dægurtónlistar. Í vor fengu þær Listamannalaun til að vinna að verkefni um Huldu skáldkonu og eru þessir tónleikar afrakstur þeirrar vinnu.
Unnur Benediktsdóttir Bjarklind fæddist þann 6. ágúst 1881 og lést 10. apríl 1946. Hún skrifaði ljóð og prósa undir skáldanafninu Hulda. Eitt þekktasta ljóð hennar var ættjarðarljóðið Hver á sér fegra föðurland úr ljóðaflokknum Söngvar helgaðir þjóðhátíðardegi Íslands 17. júní 1944, samið í tilefni af lýðveldisstofnuninni 1944 og var annað tveggja ljóða sem vann samkeppni um hátíðarljóð.
![]()
Á þessum tónleikum verða flutt lög íslenskra tónskálda við texta Huldu ásamt frumflutningi á tónlist eftir Daníel Þorsteinsson sem hann samdi sérstaklega fyrir Helgu og Þórhildi fyrir þessa dagskrá. Tónlistinni er fléttað saman við frásagnir af lífi Huldu og verkum hennar.
Tónleikarnir eru styrktir af Sóknaráætlun Norðurlands eystra, KEA, Dagskrá Fullveldishátíðar og Listamannalaunum og unnir í samstarfi við Menningarfélag Akureyrar, Menningarmiðstöð Þingeyinga og Minjasafnið á Akureyri.
Aðgangseyrir er kr 3000, eldri borgarar og öryrkjar kr 2500, frítt fyrir 12 ára og yngri.
Dagskrána má sjá hér að neðan:
Hamrar, Menningarhúsið Hof, Akureyri þriðjudaginn 19. júní kl 20
Safnahúsið á Húsavík miðvikudaginn 20. júní kl 20
Hannesarholt, Reykjavík fimmtudaginn 28. júní kl. 20
Hólmavíkurkirkja föstudaginn 29. júní kl. 20
Hamrar, Ísafirði laugardaginn 30. júní kl. 17
Skólahúsinu, Kópaskeri laugardaginn 11. ágúst kl. 20
Tónlistarmiðstöð Austurlands, Eskifirði sunnudaginn 12. ágúst kl. 17
The post HULDA-HVER Á SÉR FEGRA FÖÐURLAND – Tónlistardagskrá í tali og tónum um líf skáldkonunnar Huldu appeared first on Albumm.